Í þessu verkefni átti ég að útbúa lasagne og béchamelsósu út frá uppskrift sem við fengum. Ég átti að breyta uppskriftinni þannig að hún yrði vegan og því þurfti ég að skipta út nokkrum hráefnum. Ég notaði meðal annars vegan-hakk í stað nautahakks og möndlumjólk og jurtarjóma í stað mjólkurafurða.

Hráefni í lasagne
Ég byrjaði á að taka saman hráefnin sem ég ætlaði að nota í lasagneð. Ég notaði vegan-hakk í stað nautahakks og passaði að velja lasagneplötur sem hentuðu uppskriftinni.
Skref 1
Ég saxaði laukinn og hvítlaukinn smátt og reif gulrótina niður með rifjárni. Þegar allt var tilbúið gat ég byrjað að steikja grænmetið.


Skref 2
Ég hitaði olíu á pönnu og steikti laukinn fyrst. Síðan bætti ég gulrótinni og hvítlauknum við og steikti þar til grænmetið var farið að mýkjast.
Skref 3
Næst steikti ég vegan-hakkið og blandaði því saman við grænmetið. Ég hrærði vel saman svo allt myndi blandast jafnt.


Ég bætti niðursoðnum tómötum, tómatmauki og kryddi út á pönnuna. Síðan lét ég sósuna malla við vægan hita og hrærði reglulega í henni. Ég bætti einnig smá vatni við svo hún yrði ekki of þykk.
Hráefni í béchamelsósuna
Þá var komið að béchamelsósunni. Í stað venjulegrar mjólkur notaði ég möndlumjólk og í stað rjóma notaði ég jurtarjóma. Ég notaði einnig smjörlíki í stað smjörs.


Skref 1
Ég hitaði möndlumjólkina með lauk og kryddi og lét hana síðan standa áður en ég síaði kryddin frá. Í öðrum potti hitaði ég smjörlíki og hveiti saman og bætti möndlumjólkinni smám saman út í.
Skref 2
Ég hrærði í sósunni þar til hún var orðin þykk og slétt. Að lokum bætti ég jurtarjómanum við og kryddaði eftir smekk.


Skref 3
Þegar báðar sósurnar voru tilbúnar byrjaði ég að setja lasagneð saman. Ég raðaði lasagneplötum, vegan-hakksósunni og béchamelsósunni í lög í eldfast mót.
Skref 4
Ég setti lasagneð í 190°C heitan ofn og bakaði þar til plöturnar voru orðnar mjúkar og yfirborðið farið að brúnast. Síðan lét ég réttinn standa aðeins áður en ég skar í hann.

Svör við spurningum
- Hvað notaðir þú í stað ofnæmisvaldanna?
Ég notaði möndlumjólk, jurtarjóma og smjörlíki í stað mjólkurafurða. Ég valdi einnig lasagneplötur án eggja. - Hvaða hráefni komu í staðinn fyrir þau sem ekki mátti nota?
Ég skipti nautahakkinu út fyrir vegan-hakk, venjulegri mjólk fyrir möndlumjólk, rjóma fyrir jurtarjóma og smjöri fyrir smjörlíki. - Var eitthvað frábrugðið upprunalegri uppskrfit?
Já, helsti munurinn var að ég notaði ekkert kjöt eða mjólkurafurðir. Ég sleppti einnig beikoni og hráskinku sem voru í upprunalegu uppskriftinni. Að öðru leyti reyndi ég að fylgja uppskriftinni eins vel og ég gat.
Útkoman og ígrundun
Lasagneð leit vel út þegar það kom úr ofninum og yfirborðið hafði brúnast ágætlega. Béchamelsósan var frekar þykk þegar ég setti réttinn saman, þannig að næst myndi ég mögulega hafa hana aðeins þynnri svo auðveldara væri að dreifa henni yfir lasagneð.
Lasagneð bragðaðist ágætlega. Það var ekki vont en maður fann samt fyrir bragði sem maður kannaðist ekki við og vissi þá að maður var að borað vegan hakk.
Ef ég fengi einstakling sem er vegan myndi ég alveg gera þetta aftur og hafa það bara í boði þar sem þetta var ekki vont.

Leave a Reply