Lasagne án mjólkur og eggja

Í þessu verkefni átti ég að útbúa lasagne án mjólkur og eggja. Ég notaði nautahakk eins og í upprunalegu uppskriftinni en þurfti að breyta béchamelsósunni og passa að lasagneplöturnar væru án eggja.

Ég ákvað líka að bæta papriku og sveppum við uppskriftina og sleppa beikoni og hráskinku.

Hráefni í lasagne

Ég byrjaði á því að taka saman hráefnin sem ég ætlaði að nota. Ég notaði meðal annars nautahakk, gulrætur, papriku, sveppi, lauk, hvítlauk og tómata.

Skref 1

Ég byrjaði á því að skera sveppina, paprikuna, laukinn og hvítlaukinn niður í litla bita. Síðan reif ég gulræturnar niður með rifjárni.

Skref 2

Næst steikti ég grænmetið á pönnu þar til það var farið að mýkjast. Þegar það var tilbúið setti ég það í skál á meðan ég steikti nautahakkið.

Skref 3

Næst steikti ég grænmetið á pönnu þar til það var farið að mýkjast. Þegar það var tilbúið setti ég það í skál á meðan ég steikti nautahakkið.

Hráefni í béchamelsósuna

Þar sem lasagneð átti að vera án mjólkur notaði ég möndlumjólk, jurtarjóma og smjörlíki í stað venjulegra mjólkurafurða.

Skref 1

Ég byrjaði á því að hita möndlumjólkina með lauk og kryddi. Síðan lét ég hana standa í smá stund áður en ég síaði kryddin frá.

Skref 2

Í öðrum potti bræddi ég smjörlíkið og hrærði hveitinu saman við. Ég hrærði vel þar til blandan var orðin slétt.

Skref 3

Ég bætti möndlumjólkinni smám saman út í og hrærði vel á meðan. Þegar sósan var orðin hæfilega þykk bætti ég jurtarjómanum við og kryddaði eftir smekk.

Lasagne sett saman

Þegar báðar sósurnar voru tilbúnar byrjaði ég að setja lasagneð saman. Ég raðaði lasagneplötunum, hakksósunni og béchamelsósunni í lög í eldfast mót.

Lasagne tilbúið

Að lokum setti ég lasagneð í ofninn og bakaði þar til plöturnar voru orðnar mjúkar og yfirborðið farið að brúnast. Þá var lasagneð tilbúið.

Svör við spurningum

  1. Hvað notaðir þú í stað ofnæmisvaldanna?
    Ég notaði möndlumjólk, jurtarjóma og smjörlíki í stað mjólkurafurða. Ég þurfti einnig að velja lasagneplötur sem innihéldu ekki egg.
  2. Hvaða hráefni komu í staðinn fyrir þau sem ekki mátti nota?
    Venjulegri mjólk var skipt út fyrir möndlumjólk, rjóma fyrir jurtarjóma og smjöri fyrir smjörlíki.
  3. Var eitthvað frábrugðið upprunalegri uppskrift?
    Já, auk þess að skipta út mjólkurafurðunum ákvað ég að bæta papriku og sveppum við uppskriftina. Ég sleppti einnig beikoni og hráskinku.

Útkoman og ígrundun

Lasagneð leit vel út þegar það kom úr ofninum og béchamelsósan hafði dreifst ágætlega yfir réttinn. Mér fannst líka koma vel út að bæta papriku og sveppum við uppskriftina þar sem það gerði hakksósuna fjölbreyttari.

Lasagne heppnaðist mjög vel og ég myndi alveg 100% gera þetta aftur

Leave a Reply