Glútenlaus pítas

Mig langar að prófa að búa til glútenlausa pítsu frá grunni og sjá hvernig hún kæmi út. Ég notaði glútenlaust hveiti í botninn og setti síðan álegg sem mér fannst passa vel saman

Hráefni

Pítsabotn
2½ tsk þurrger

2 dl volgt vatn

½ dl matarolía

½ tsk salt

4 dl glútenlaust hveiti

Álegg
2 laukar

1–2 msk olía

1 tsk rifsberjasulta

2 tómatar

200 g rifinn mozzarellaostur

Pítsusósa

Sveppir

Skref 1

Ger og volgt vatn
Ég byrjaði á því að setja þurrgerið í skál og hellti volgu vatni yfir. Síðan hrærði ég þessu saman.

Skref 2

Hráefnum blandað saman
Næst bætti ég matarolíu, salti og glútenlausa hveitinu út í og blandaði öllu saman.

Skref 3

Deigið hnoðað
Ég hnoðaði deigið vel saman og mótaði úr því kúlu. Síðan setti ég það í olíuborna skál.

Skref 4

Hefing
Ég setti viskastykki yfir skálina og lét deigið hefast í um 30 mínútur.

Skref 5

Laukur og rifsberjasulta
Á meðan deigið var að hefast skar ég laukinn í þunnar sneiðar og steikti hann í olíu þar til hann var orðinn mjúkur. Síðan bætti ég rifsberjasultunni saman við.

Skref 6

Álegginu raðað á pítsuna
Ég flatti deigið út á bökunarpappír og smurði pítsusósu yfir botninn. Síðan setti ég mozzarellaost, laukblönduna, tómata og sveppi yfir. Þá var pítsan tilbúin í ofninn.

Skref 7

Komið úr ofninum
Ég bakaði pítsuna við 250°C í um 10–15 mínútur þar til osturinn hafði bráðnað og pítsan var orðin fallega gyllt. Þá var hún tilbúin til að bera fram.

Útkoman
Ég var ekki sérstaklega ánægður með útkomuna. Pítsan leit ágætlega út en mér fannst hún ekki góð á bragðið. Þetta var einfaldlega ekki pítsa fyrir mig og ég myndi frekar velja venjulega pítsu næst. Það var samt áhugavert að prófa að gera glútenlausan pítsubotn frá grunni og sjá hvernig hann kæmi út.

Leave a Reply