Í þessari uppskrift ákvað ég að prófa að baka eggjalausar múffur með kremi. Mér fannst áhugavert að prófa uppskrift þar sem eplamauk er notað í stað eggja og sjá hvernig það kæmi út. Ég ákvað líka að gera blátt krem ofan á múffurnar til að gera þær aðeins skemmtilegri.

Hráefni
Múffur
150 g mjúkt smjörlíki
1 dl sykur
3½ dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 dl eplamauk
Skref 1
Smjörlíki + sykur
Fyrst setti ég smjörlíkið og sykurinn saman í skál og hrærði þar til blandan var orðin létt og ljós.


Skref 2
Þurrefnunum bætt við
Næst sigtaði ég hveitið og lyftiduftið og bætti því saman við smjörlíkið og sykurinn. Ég hrærði þessu síðan saman áður en ég bætti eplamaukinu við.
Skref 3
Deigið tilbúið
Þegar öll hráefnin voru komin saman hrærði ég deigið þar til það var orðið vel blandað. Deigið var nokkuð þykkt en leit vel út og var tilbúið til að fara í múffuformin.


Skref 4
Tilbúnar í ofninn
Ég skipti deiginu niður í múffuform og setti þær í 180°C heitan ofn. Múffurnar voru síðan bakaðar í um 20 mínútur.
Skref 6
Komnar úr ofninum
Þegar múffurnar voru tilbúnar tók ég þær úr ofninum og lét þær kólna áður en ég setti kremið á. Þær höfðu lyft sér vel og voru orðnar fallega gullinbrúnar.


Hráefni
Krem
250 g flórsykur
Mjólk til að þynna með
Matarlitur
1 tsk. möndludropar
Skref 7
Kremið útbúið
Þegar múffurnar voru að kólna byrjaði ég að útbúa kremið. Ég blandaði flórsykri og mjólk saman og bætti síðan við bláum matarlit og möndludropum.


Skref 8
Tilbúnar múffur
Að lokum setti ég bláa kremið ofan á múffurnar. Þar sem kremið var frekar þunnt rann það aðeins út yfir múffurnar í stað þess að haldast þykkt ofan á þeim.
Útkoman
Mér fannst múffurnar heppnast vel og þær voru góðar á bragðið. Ég var ánægður með hvernig þær komu út og fannst áhugavert að sjá að það væri hægt að baka góðar múffur án þess að nota egg.
Það eina sem ég myndi breyta næst væri kremið. Mér fannst það of þunnt og það rann því aðeins of mikið út yfir múffurnar. Næst myndi ég nota minni mjólk eða bæta meiri flórsykri við til að fá þykkara krem sem myndi haldast betur ofan á múffunum.
Ég myndi alveg baka þessar múffur aftur, en þá myndi ég sérstaklega passa betur upp á þykktina á kreminu.

Leave a Reply