Mig langar að prófa þessar hafrakökur þar sem þær innihalda bæði haframjöl, hnetur og súkkulaði. Þær eru orkuríkar og því tilvaldar til að taka með í gönguferð eða sem nesti á ferðinni.

Hráefni
50g pekanhnetur
100g suðusúkkulaði
2 1/2 dl hveiti
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk kanill
1/2 tsk salt
2 1/2 dl haframjöl
125g mjúkt smjör
1 1/4 dl púðursykur
1 1/4 dl sykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
Skref 1
Pekanhnetur og súkkulaði saxað
Ég byrjaði á því að saxa pekanhneturnar og súkkulaðið gróft og setti það síðan til hliðar á meðan ég undirbjó deigið.


Skref 2
Þurrefnunum blandað saman
Næst blandaði ég hveiti, lyftidufti, kanil, salti og haframjöli saman í skál.
Skref 3
Smjör og sykur þeytt saman
Ég þeytti smjörið, púðursykurinn og sykurinn vel saman. Síðan bætti ég egginu og vanilludropunum út í og hrærði þar til allt hafði blandast saman.


Skref 4
Deigið tilbúið
Þá bætti ég þurrefnunum hægt út í smjörblönduna og hrærði varlega saman. Að lokum setti ég saxaðar pekanhneturnar og súkkulaðið út í deigið.
Skref 5
Tilbúið í ofninn
Ég mótaði kúlur úr deiginu og raðaði þeim á bökunarplötu með bökunarpappír. Síðan þrýsti ég létt ofan á hverja köku með gaffli og setti plötuna inn í 180°C heitan ofn.


Skref 6
Komið úr ofninum
Ég bakaði kökurnar í um 15 mínútur, þar til þær voru orðnar ljósgylltar. Síðan tók ég þær úr ofninum og lét þær kólna á meðan þær hörðnuðu aðeins.
Skref 7
Tilbúnar hafrakökur
Þegar kökurnar höfðu kólnað voru þær tilbúnar til að bera fram. Þá var ekkert annað eftir en að smakka.

Útkoman
Ég var mjög ánægður með hvernig hafrakökurnar heppnuðust. Þær voru svolítið harðar að utan en samt aðeins mjúkar að innan og mjög góðar á bragðið. Mér fannst pekanhneturnar og súkkulaðið passa vel saman.
Ég sleppti rúsínum úr upprunalegu uppskriftinni þar sem ég er ekki mikið fyrir þær. Mér fannst það koma vel út og ég myndir alveg baka kökurnar aftur á sama hátt.
Spurningar
- Hvers vegna eru þessir orkubitar orkuríkir og þá heppilegir til ferðalaga?
Hafrakökurnar eru orkuríkar þar sem þær innihalda meðal annars haframjöl, pekanhnetur, smjör, sykur og súkkulaði. Þær eru því gott nesti þegar maður er á ferðinni og þarf að fá sér eitthvað orkuríkt. Það er líka auðvelt að pakka þeim niður og taka með í göngu án þess að þurfa að hita þær eða undirbúa eitthvað á staðnum. - Hvernig er orkan samsett?
Orkan í kökunum kemur aðallega úr kolvetnum og fitu. Haframjölið, hveitið og sykurinn gefa kolvetni, en pekanhneturnar og smjörið innihalda töluvert af fitu. Eggið, haframjölið og hneturnar gefa líka eitthvað af próteini. Kökurnar innihalda því blöndu af þessum orkuefnum, þótt kolvetni og fita séu mest áberandi. - Hverju myndir þú vilja væta við eða taka úr uppskriftinni?
Ég sleppti rúsínunum úr upprunalegu uppskriftinni þar sem ég er ekki mikið fyrir þær. Mér fannst kökurnar heppnast mjög vel án þeirra, en næst væri ég til í að prófa að setja þurrkuð trönuber í staðinn. Ég held að þau gætu passað vel með pekanhnetunum og súkkulaðinu og gefið kökunum aðeins öðruvísi bragð.

Leave a Reply