Þessi döðlukaka er orurík og gæti hentað vel í nesti í ferðalögum. Ég ákvað að prófa þessa uppskrift þar sem mér fannst döðlu og súkkulaði hljóma eins og mjög góð blanda

Hráefni
150g smjör
1 bolli saxað suðusúkkulaði
1 1/2 bolli saxaðar döðlur
3 egg
1/2 bolli sykur
1 tsk vanilludropar
2 bollar hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft
1 bolli haframjöl
Mjólk
Skref 1
Undirbúningur
Ég byrjaði á því að saxa döðlur og súkkulaði niður í grófa bita. Síðan bræddi ég smjörið og lét það kólna aðeins á meðan ég undibjó restina af hráefnunum.


Skref 2
Egg og sykur þeytt saman
Ég setti eggin og sykurinn í hrærivélina og þeytti vel saman þar til blandan var orðin ljós og létt. Síðan bætti ég vanilludropunum út í og hrærði áfram
Skref 3
Tilbúið í ofninn
Þegar ég var búinn að þeyta eggin og sykurinn bætti ég restinni af hráefnunum saman við og hrærði öllu vel saman. Síðan setti ég deigið í smurt kökuform og dreifði því jafnt yfir. Að lokum setti ég kökuna inn í ofn á 175°C.


Skref 4
Komið úr ofninum
Þegar kakan var tilbúin tók ég hana úr ofninum og lét hana kólna aðeins í forminu áður en ég tók hana úr því.
Skref 5
Tilbúin kaka
Þegar kakan hafði kólnað tók ég hana úr forminu og setti á kökudisk. Þá var kakan tilbúin til að bera fram á borð og smakka

Útkoman
Ég var ánægður með útkomuna og mér fannst kakan mjög góð á bragðið. Döðlurnar og súkkulaðið pössuðu vel saman og gáfu kökunni gott bragð
Kakan var þó svolítið þétt og ég hefði mátt bæta meiri mjólk út í deigið til að þynna það betur. Næst ætla ég að prófa bæta við meiri mjólk og sjá hvort kakan yrði þá mýkri.
Spurningar
- Hvers vegna er kakan orkurík og heppileg til ferðalaga?
Kakan inniheldur meðal annars döðlur, súkkulaði, smjör og haframjöl sem gerir hana orkuríka. Það er auðvelt að skera hana í sneiðar og taka með sem nesti þegar maður er á ferðinni. - Hvernig er orkan samsett?
Orkan kemur aðallega úr kolvetnum og fitu. Döðlurnar, sykurinn, hveitið og haframjölið gefa kolvetni, en smjörið og súkkulaði gefa meðal annars fitu. Eggin og haframjölið gefa einnig eitthvað af próteini. - Hverju myndir þú vilja bæta eða taka úr uppskriftinni?
Ég myndi ekki taka neitt úr uppskriftinni þar sem mér fannst kakan mjög góð á bragðið. Ég myndi hins vegar bæta aðeins meiri mjólk út í deigið næst. Það var frekar þykkt og kakan varð svolítið þétt, svo mig langar að prófa hvort hún verði mýkri með aðeins meiri mjólk. - Hvernig haldið þið að kaka Heimilisfriður Elísabetar Jökuls henti til ferðalaga?
Ég held að kakan henti ágætlega sem nesti í ferðalögum þar sem hún er orkurík og auðvelt er að skera hana niður í bita og taka með sér. Hún inniheldur meðal annars döðlur, súkkulaði og haframjöl sem gefa orku og geta því verið góð viðbót við nestið í ferðalaginu.
Ég myndi þó frekar taka hana með í styttri ferðir þar sem hún inniheldur meðal annars smjör, egg og mjólk. Það væri líka gott að geyma hana í nestisboxi svo hún myndi ekki molna í bakpokanum.

Leave a Reply