Þessar orkustangir eru einfaldar í gerð og henta vel sem fljótlegt nesti. Ég ákvað að nota döðlur og trönuber saman þar sem trönuberin gefa aðeins súrara bragð á móti sætunni úr döðlunum.

Hráefni
5½ dl döðlur
½ dl þurrkuð trönuber
100 g smjör
2 dl haframjöl
2 dl haframjöl
2 dl múslí
2½ msk lyftiduft
1 dl púðusykur
1 tsk vanillusykur
2 msk síróp
Ferlið í skrefum

Skref 1
Undirbúningur
Ég saxaði döðlurnar og trönuberin niður og undirbjó restina af hráefninu áður en ég blandaði öllu saman.

Skref 2
Allt blandað saman
Þegar allt hráefnið var tilbúið blandaði ég því vel saman þar til blandan var orðin nokkuð jöfn og tilbúin til að fara á ofnplötuna.

Skref 3
Tilbúið í ofninn
Þegar blandan var tilbúin setti ég bökunarpappír á ofnplötu og dreifði blöndunni jafnt yfir. Síðan var ekkert annað eftir en að skella henni inn í ofn á 170°C í 15 mínútur.

Skref 4
Komið úr ofninum
Þegar orkustöngin var tilbúin tók ég hana úr ofninum og lét hana kólna alveg á plötunni.

Skref 5
Tilbúnar orkustangir
Þegar orkustangirnar höfðu kólnað alveg skar ég þær niður í hæfilega stóra bita. Að lokum pakkaði ég hverjum bita fyrir sig inn í bökunarpappír
Útkoman
Ég var mjög ánægður með útkomuna. Orkustangirnar heppnuðust vel og bragðið kom mjög vel út. Þær voru einfaldar í gerð og ég gæti vel hugsað mér að gera þær aftur, sérstaklega þar sem þær henta vel sem fljótlegt og gott nesti.

Leave a Reply